Fréttamolar


Fréttamolar frá sumri og hausti 2011



Sumarið reyndist okkur í Koltursey afar gjöfult og skemmtilegt og eftirfarandi eru hápunktar þess:

Fimm merar frá fjölskyldunni voru sýndar til fyrstu verðlauna í sumar, þar af tvær úr okkar ræktun og ein undan Stíganda frá Leysingjastöðum sem stendur okkur mjög nærri. Sýnandi var snillingurinn Daníel Jónsson en annar snillingur, Þórður Þorgeirsson sýndi reyndar eina þeirra. Það er ekki laust við að við séum hrikalega ánægð með þetta.


Nýtt hús birtist í orðsins fyllstu merkingu í Koltursey en við létum flytja til okkar fullklárað hús í sumar sem nú er unnið hörðum höndum að við að gera klárt til íveru. Litla sæta dúkkuhúsið okkar fær því fljótlega það virðulega verkefni að hýsa gesti sem vilja næði, fínasta hlutverk enda er litla húsið sérlega rómantískt hús.


Sumarskólinn hjá okkur Beggu í Hestamennt gekk ákaflega vel, um 500 börn sóttu skólann og skemmtu sér alveg konunglega. Við erum ánægðar með að geta kynnt með þessum hætti hestamennskuna fyrir börnum sem ekki eiga hesta og svo virðist sem nokkuð sé um að fólk sé að hella sér út í sportið. Töluvert var um fyrirspurnir frá áhugasömum foreldrum um hvernig best væri að stíga fyrstu skrefin í hestaíþróttinni sem er bara frábært. Kreppa hvað!


Árleg hestaferð fjölskyldunnar var frábær að vanda, þægilegar dagleiðir og tilkomumiklar grillveislur eru einkennismerki þeirra og engin undantekning í ár. Það fór þó svolítið um Martinu Gates vinkonu okkar frá USA þegar Hekla var með einhverjar hótanir um að gjósa þegar riðið var þar framhjá. Hún sá fram á að þurfa jafnvel að vera hér veturlangt og leist ekki á blikuna enda Eyjafjallajökull nýbúinn að hrella heimsbyggðina með eftirminnilegum hætti. Ekkert varð úr gosi og allir happy með það.


Þórhallur hóf störf hjá Sigurbirni Bárðasyni snemma í vor og var afskaplega ánægður þar í starfi. Hann heillaðist ekki bara af frábærum hestakosti þessa magnaða hestasnillings sem Diddi er, heldur heillaðist hann líka uppúr skónum af yngri heimasætunni henni Söru! Annað er reyndar ekki hægt enda stúlkan með eindæmum geðsleg og yndisleg í alla staðiJ Svo nú standa leikar þannig að Diddi hefur misst vinnumanninn þar sem Tóti (Þórhallur) ákvað að fylgja Söru sinni á Hóla þar sem hún hóf nám nú í haust. Þórhallur leigir nú aðstöðu í nágrenni Hóla og þjálfar þar hross auk þess sem að bjóða Skagfirðingum uppá járningar.


Nýr árgangur er nú kominn í hús til frumtamninga ásamt nýjum þjálfara en Line okkar hefur ákveðið að temja og þjálfa á eigin vegum í vetur. Við þökkum henni fyrir frábær störf og óskum henni alls hins besta í framtíðarstörfum. Sá sem tekur við af henni er James Faulkner sem við bjóðum hjartanlega velkominn til starfa hjá okkur.


Við Begga í Hestamennt erum að gera spennandi hluti en við tökum nú þátt í að móta nýja hestabraut við framhaldsskólann í Mosfellsbæ, Fmos. Við höfum þegar hafið kennslu við brautina ásamt þeim Súsönnu Sand Ólafsdóttur og Line okkar Nörrgard. Hrikalega spennandi og skemmtilegt verkefni sem bindum vonir við að muni auka á möguleika ungs hestafólks til að fá útrás fyrirhæfileika sína á sviði hestamennskunnar.




Fréttamolar árið 2010

Haust og vetur
Haustið var annasamt, Line og Elías fylltu húsið af þriggja og fjögurra vetra tryppum og svo var tamið og tamið og tamið og tamið:-) Þessi afkvæmi eru meðal annars undan Álfasteini, Rökkva, Svartni, Stíganda og fleirum. Þjálfararnir voru ánægðir með hrossin og þau voru á því að þau kæmu hratt til. Þessi hross fengu síðan frí í tvo mánuði og voru svo tekin inn aftur nú um áramót.

Þó Elli og Line hafi virkilega lagt sig fram við tamningarnar þá þótti Gulli í Snælandi algjörlega eiga vinninginn í rösklegheitum við tamningarnar. Line var að leggja honum lið um tíma og það var gantast með það í hverfinu að Gulli biði með hest í taumi og hjálminn hennar Line í hinni þegar hún mætti í býtið. Tamningastöð þeirra var hið snarasta skírð "hraðtamningar.is". Þetta kemur auðvitað ekkert á óvart enda Gulli þekktur fyrir flest annað en einhvern slugshátt!

Svartnir á þrjú afkvæmi í húsinu en það eru reyndar einu afkvæmin sem til eru frá honum í þessum árgangi. Það er ótrúlega gaman að segja frá því að þessi þrjú eru vægast sagt hvert öðru betra! Tvær merar og einn graðhestur og þessi ungi stóðhestur er einhver fallegasti ungfoli sem maður hefur augum litið! Svörður heitir hann og ég hef sagt það áður og segi enn að það er ekki galið að fylgjast með því nafni í framtíðinni:-) Tígulegur, hrikalega hágengur og virðist ætla að vera nánast sjálftaminn! Og ljúfur með afbrigðum! Er hægt að biðja um meira??! Ehhh, NEI!

Folaldahópurinn okkar er í ár allur undan Fonti utan eitt en Jörð hans Þórhalls er undan Óðni frá Eystra Fróðholti. Eins og oft áður sér Valdimar frændi okkar í Hveragerði um ungviðið. Það er ótrúlega gaman að því að hann er afskaplega ánægður með Fonts börnin, segir þau ekki bara gullfalleg heldur skynsöm og skemmtileg í umgengni. Gaman að þessu:-)

Mikið hefur verið rætt og ritað um að hóstapestin hafi farið illa í ungviðið og við höfum svo sem alveg orðið vör við það. Við höfum þó verið ótrúlega heppin, aðeins misst eitt folald og það fór reyndar gegnum ís og drukknaði en var alveg frískt af þessari bannsettu pest. Þetta var brúnskjótt merfolald undan Fonti og Kjarnorku okkar, mikill missir í því og reyndar alveg sérlega ömurlegur dauðdagi:-(

Hestamennt, nýja fyrirtækið okkar Beggu, hefur farið vel af stað. Uppselt hefur verið á öll reiðnámskeið, við erum komnar af stað með reiðþjálfun fyrir fatlaða, við höfum þróað nýtt leiðtoganámskeið fyrir börn og unglinga og svo hafa þónokkrir "hugrakkir" vinnustaðir komið til okkar á námskeið sem flest hafa fjallað um liðsheild og samskipti. Það hefur verið alveg frábært að starta þessu öllu saman og við Begga erum spenntar fyrir framtíðinni!

Fonturinn er kominn til Þórhalls fyrir norðan og dvelur nú í góðu yfirlæti á Hrafnagili. Þessir gömlu félagar hafa heldur betur endurnýjað kynnin og virðast báðir alsælir með samstarfið:-) Ég verð að segja að ég hlakka til að "þurfa" að fara norður til að fylgjast með þeim í töltkeppni, bara vonandi sem fyrst!

Tóta barst annars liðsauki norður en þangað færði ég honum alveg yndislega labradorhvolp sem hann skírði Tý. Algjör krúttlingur sem reyndar virðist vera meira fyrir kýr en hross! Sem bendir nú til þess að hann gangi ekki alveg heill til skógar...en hann er ósköp sætur og ber þessi undarlegheit ekki með sér í útliti! Sem betur fer!

Það er alveg með ólíkindum hvað við höfum eignast mikið af merum undanfarin ár og nú er hesthúsið stútfullt af stórglæsilegum hryssum! Þessar elstu, sem við Begga köllum aldrei neitt annað en "prinsessugengið" er í þvílíku stuði og komu reyndar inn eins og þær hefðu aldrei farið í frí! Hágengar, hreingengar og í þvílíku stuði:-) Það eru hreinustu forréttindi að hafa svona gæðingastóð í húsinu og bara endalaust gaman:-) Gullfallegar og skemmtilega merar alltsaman sem við hlökkum til að fara með í dóm! Jibbí!

Vor og sumar
Vorið reyndist sérlega gjöfult á merar en okkur fæddust eingöngu merarí ár, allir afar glaðir með það! Merarnar okkar fóru allar utan einundir Fontinn okkar og við fengum brúnt, brúnskjótt, sótrautt og rauttfrá honum. Þær hafa glæsilegan frampart og bera sig vel og aðsjálfsögðu erum við bjartsýn á þennan árgang.

Reiðskólinn hjá Beggu er nú kominn í fullan gang og hefur gengiðfrábærlega vel þó nokkur hross hafi helst úr lestinni vegna veikinda.Við Begga höfum ruglað saman reitum okkar og erum í samvinnu meðhefðbundinn reiðskóla og annarskonar námskeið fyrir börn og unglingaþar sem við notum hesta og fleiri dýr í samskipta- og leiðtogaþjálfun.Þetta gengur glimrandi vel og er ákaflega gaman en við munum haldaáfram að þróa þessar aðferðir í haust og vetur.


Vorið hefur einkennst af miklum hrossaflutningum vegna eldsumbrotannafyrir austan og hinnar dularfullu hrossapestar sem herjað hefur áhrossin. Þessi ömurlega pest virðist nú vera á undanhaldi og nú nýlegatókum við inn nokkuð af kynbótahrossunum og þjálfun þeirra er nú hafin.Við krossleggjum fingur og vonum heitt að þau verið í lagi og kvefið séendanlega búið. Hrossin líta vel út og eru feit og sælleg eftir þettaóvænta vor og sumarfrí og við stefnum á síðsumarsýningar með þau.


Stóðhestarnir okkar þrír, Fontur, Svartnir og Magni eru ekki komnir inní þjálfun enda eru þeir allir uppteknir við að sinna merum. Svartnir ogMagni verða þó ekki lengi enn í slíku sældarlífi enda voru þeir báðir áleið í dóm þegar hestapestin reið yfir. Þeir verða því að öllumlíkindum sóttir innan tíðar og tekið til við þjálfun þeirra aftur.


Einkasonurinn, Þórhallur Dagur, er fluttur norður yfir heiðar þar semhann þjálfar og temur hross hjá Baldvin Ara fyrst um sinn en í haustflytur hann sig yfir til Jóns Elvars á Hrafnagili og tekur til viðþjálfun hrossanna þar. Ég spái því að hann verði kominn með hreim innanmánaðar:-)


Húsbyggingin í Koltursey gengur vel og litla dúkkuhúsið okkar er réttvið það að verða tilbúið! Svei mér þá ef ekki verður slegið uppinnflutningspartýi þegar flutt verður inn!


Flest hrossanna okkar fóru frekar létt út úr kvefpestinni en þó vorunokkur sem urðu töluvert veik. Þeirra á meðal hún Embla, hryssan hansPéturs en hún varð alvarlega veik, fékk slæma lungnabólgu og varhreinlega hætt komin. Hún er nú öll að koma til þó hún sé enn nokkuðhoruð eftir þessar hörmungar.


Apríl:

Hér kemur ýmislegt sem til tíðinda hefur borið að undanförnu.

Fontur okkar var fimmti í ístöltinu í skautahöllinni-stórglæsilegur og við erum hæstánægð með hann!


Mikið annríki hefur verið við að flytja hross frá eldfjallasvæðinu á öruggari svæði þar sem hægt er að setja þau inn komi til öskufalls. Hrossin eru nú öll komin í öruggt skjól nema Frigg frá Miðey sem við náðum því miður ekki.


Við erum komin með á hús gullfallegan son Svartnis og Sölku frá Sauðárkróki. Forvitinn og ljúfur foli sem við bindum miklar vonir við.


Hnáta Kjarnorku dóttir er nú farin í frí en það er stefna okkar að kreista ekki meira út úr tryppunum heldur en þau þola með mjög góðu móti. Hún kemur sterk inn næsta haust.


Við Begga erum með í bígerð stofnun fyrirtækis þar sem hesturinn er notaður við margvíslega fræðslu á nýstárlegan máta. Meira um það síðar.


Kolturseyjarbúið tók í fyrsta sinn þátt í sýningu um daginn en við vorum með á sýningunni Ræktun 2010 í Ölfushöllinni. Við vorum afskaplega stolt af hópnum okkar sem sýndist vel með dyggri aðstoð frábærra knapa. Okkur til aðstoðar voru Siggi Sig, Gummi Björgvins og Lena Zilenski. Elli, Þórhallur og Line voru að sjálfsögðu einnig í sýningunni.


Í sýningunni var hin fjögurra vetra Staka frá Koltursey en hún er undan Stíganda frá Leysingjastöðum og Sölku frá Sauðárkróki. Við vorum hreinlega að rifna af stolti yfir þessari ungu hæfileikaríku meri en hún stóð sig þvílíkt vel þarna, hágeng og stórglæsileg og sýndi þetta flott tölt sem hún lærði nú bara fyrir tveimur vikum síðan:-) algjör snillingur þarna á ferð.


Litla landið okkar sem er í landi Miðeyjar í Austur Landeyjum hefur enn sem komið er sloppið að mestu við öskufall. Auðvitað vonar maður að það verði þannig áfram þó maður hafi afar mikla samúð með þeim bæjum sem lenda í þessum fjanda! Vonandi fer þessu endanlega að ljúka!




Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 90563
Samtals gestir: 26711
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:04:13