22.04.2012 21:20

Stórsýning Fáks og Ræktun 2012!!

Í gær var haldin Stórsýning Fáks í Víðidalnum og vorum við með ræktunarsýningu frá Koltursey. Við vorum að sjálfsögðu voða upp með okkur að fá að vera með og urðum svo ótrúlega montin þegar við sáum að það voru engin önnur ræktunarbú!! Sýningin gekk ótrúlega vel og vorum við rosalega ánægð... og já eiginlega alveg hrikalega MONTIN með hrossin sem stóðu sig eins og hetjur..... já og knaparnir auðvitað líka ;-) Þessi hross eru ekki veraldarvön þar sem þau eru aðeins 5 og 6 vetra svo þetta var hin fínasta tamning í leiðinni :-)
Hrossin og knaparnir sem fóru á sýninguna frá okkur voru: Staka frá Koltursey og Árni Björn Pálsson, Hnoss frá Koltursey og Elías Þórhalls, Hrafnhetta frá Þúfu og Daníel Jóns, Regla frá Koltursey og Þórhallur Péturs, Stingur frá Koltursey og Sara Sigurbjörns.
Þetta var bara upphitun því næstu helgi skal haldið austur í Ölfushöllina og þar ætlum við að taka þátt í RÆKTUN 2012..... endalaus gleði emoticon 

Stóðhesturinn okkar Svörður frá Koltursey fæddur 2007 fékk beinhimnubólgu fyrr í vetur og var því í pásu í tæpa 2 mánuði...... en nú er Svörður kominn í fulla brúkun aftur og smelltum við nokkrum myndum af gripnum núna um daginn í blíðunni. Læt hér fylgja myndir af kvekendinu sem er með eindæmum fagurt þó ég segi sjálf frá....emoticon
Svörður er undan Svartni frá Miðsitju og Sölku frá Sauðárkróki.



Hérna kemur svo smá vídjó af meri sem við erum með í þjálfun fyrir góða vinkonu okkar hana Martinu Gates sem á stóðhestinn Stíganda frá Leysingjastöðum. Merin heitir Barónessa og er fædd 2008 hún er undan Kráki frá Blesastöðum og Tildu frá Hrafnhólum. 

Hérna er linkur á vídjóið emoticon







10.04.2012 22:19

Blæja frá Koltursey fædd 2008

Hérna kemur smá vídjóbrot af Blæju frá Koltursey...... maður er alveg að æfa sig á fullu að búa til svona vídjó.... bara gaman :-)

Blæja er undan honum Svartni okkar frá Miðsitju og Fjöður frá Gamla-Hrauni og verður hún 4v. núna í vor..... að sjálfsögðu stefnum við með hana í sýningu í vor / sumar og vonum að það takist vel til :-) 

Hérna er tengill á vídjóið:

10.04.2012 17:19

og enn fleiri myndir :-)

Það er greinilegt að vorið er komið....... myndavélin gripin með við hvert tækifæri... ;-)

Hnit frá Koltursey 4v.(f.2008) undan Stála frá Kjarri og Kjarnorku frá Sauðárkróki.


Blæja frá Koltursey 4v.(fædd 2008) undan Svartni frá Miðsitju og Fjöður frá Gamla-Hrauni.


Staka frá Koltursey 6v.(fædd 2006) undan Stíganda frá Leysingjastöðum og Sölku frá Sauðárkróki.



Set svo fleiri myndir af þessum dömum í myndaalbúmið: Apríl 2012 emoticon


06.04.2012 15:12

Nýjar myndir!

Það eru komnar inn nýjar myndir sem teknar voru núna um miðjan febrúar þegar þegar fína vídjócameran var testuð ;-)  
Það er í nægu að snúast þessa dagana og þjálfunin alveg á fullu.....svo allt verði nú tilbúið í vor!  
Núna í apríl verðum við líka með í tveimur sýningum þannig nú þarf að spýta í lófana....hehe :-) Þann 21. apríl er stórsýning Fáks í Víðidalnum og ætlum við að mæta þangað með nokkrar merar úr ræktuninni og svo einnig þann 28. apríl á sýninguna "Ræktun 2012" í Ölfushöllinnni. Við erum náttúrulega ótrúlega spennt og hlakkar þvílíkt til...... BARA GAMAN emoticon

Hérna eru nokkrar myndir sem teknar voru um miðjan febrúar :-)


Hnoss frá Koltursey

Hnáta frá Koltursey



Regla frá Koltursey



Hnoss frá Koltursey og Magni frá Þúfu



Hérna kemur svo aftur linkurinn á vídjóið emoticon


Gleðilega páskahelgi :-)

02.04.2012 22:34

Brjálað að gera!!!

Eins og alltaf er löngu kominn tími á blogg en einhvern veginn er dagurinn alltaf hlaupinn frá manni!! Þið kannist við þetta er þaggi?? :-)  Það er í nægu að snúast þessa dagana og frændurnir (Elías og Þórhallur) að verða pínu.... nei ég meina ROSA stressaðir fyrir kynbótasýningarnar núna í vor!! Þeir vilja nú meina að svo sé ekki og tekst að halda kúlinu þokkalega ennþá.....hehe :-) Jæja nóg af gríninu.... en við stefnum að sjálfsögðu með heilan flota í dóm nú í vor og er þjálfunin í fullum gangi hjá þeim félögum og gengur hún mjög vel. 
Við tókum upp hrossin núna um miðjan febrúar í blíðunni en snjórinn var ansi blautur svo við fundum engan betri stað að taka upp en í einni götunni í hesthúsahverfinu svo þið verðið bara að horfa fram hjá staurum, bílum og skítaþróm! :-)  Þetta er fyrsta myndbandið sem ég set saman og er að sjálfsögðu voða ánægð með mig..... gat sett inn músík og allt ;-)

Hérna kemur vídjóiðemoticon

Gleðilega páska emoticon







08.02.2012 14:28

Yngismeyjarnar fögru fara fallega:-)

Þó hér á síðunni sé lítið líf þá er ekki sömu sögu að segja í Blíðubakkanum! Sem betur feremoticon
Þórhallur, Elías og Begga hamast við að þjálfa merarstóðið og ef ég skil þau rétt þá eru það ekki tóm leiðindin! Merarstóð segi ég þar sem aðeins eru merar í húsinu utan þriggja graðhesta og einn einasti geldingur sem fær allra náðarsamlegast að vera með enn um stund. En hann er reyndar á sölulista! Þjálfunin gengur vel og sérstaklega eru þau ánægð með þriggja vetra merarnar en þetta eru án efa þroskuðustu þriggja vetra tryppi sem við höfum haft á húsi hingað til, bæði hvað varðar andlegt og líkamlegt atgervi.
Því miður hefur hreint ekki viðrað til myndatöku en í morgun birti örlítið til í smástund og Begga þeysti af stað með kameruna með það sama. Set hér inn örfáar myndir frá þeim viðburði og Begga mun síðan setja inn nýtt myndaalbúm seinna í dag.

Hér er hún Regla, Elvu og Rökkvadóttir


Svo er hér ein af ljúflingnum henni Sveðju en hún er undan Dögg og Svartni



Önnur af Sveðju, það er svo gaman að hlaupa!



Svo er hér ein af Barónessu Kráksdóttur en hún er í eigu Martinu Gates vinkonu okkar. Þriggja vetra og þvílíkt efnileg! Eins og sjá má var veðrið hætt að vera til friðs og frekari myndatökum því frestað. Myndefnið eigum við þó í hrönnum og vonandi viðrar næstu daga til að festa það á mynd!


17.01.2012 16:05

Styrktartónleikar í Salnum í Kópavogi

Við viljum benda gestum síðunnar á styrktartónleika sem fara fram í Salnum í Kópavogi næstkomandi fimmtudag þann 19. Janúar.
Tónleikarnir eru haldnir til styrktar sonum Rabba vinar okkar, þeim Gunnari og Skorra (sjá betur í meðf. auglýsingu).
Ágóði tónleikanna rennur í tómstundastarf þeirra bræðra eins og t.d. hestamennsku.

26.12.2011 01:24

Gleðilega hátíð :-)

Við Kolturseyjarliðið óskum ykkur öllum gleðilegra jóla :-) Það var að sjálfsögðu farið í hinn árlega jóladagsreiðtúr í dag..... en hann var að vísu ekki alveg samkvæmt hefðinni þetta árið þ.e. að strákarnir (Pétur, Elías og Þórhallur) færu á þremur systrum, Kjarnorkudætrum eins og sl. 2 ár! En núna eru aðeins 2 dætur hennar inni, Hnáta og Hnoss þannig að það varð að bæta öðrum hrossum í hópinn og af nægu var að taka enda fullt hús :-) Ég set hérna inn mynd af flotta hópnum sem fór í dag og er gaman að segja frá því að það bættust fleiri í hópinn en hestar og á ég þá við fallegu og kláru tengdadóttur Koltureyjarhjónanna hana Söru Sigurbjörns og hækkaði hún fegurðarstuðul hópsins um mörg prik...hehe!!emoticon  

Pétur og Stroka, Sara og Stingur, Þórhallur og Regla, Elías og Svörður :-)


Svo ein í viðbót af þessu ótrúlega fallega fólki :-)

Jólaknús til ykkar emoticon

05.12.2011 10:08

Stórtíðindi í Blíðubakkanum!

Þau stórtíðindi eru héðan að einkasonurinn ætlar að yfirgefa Norðurlandið og hana Söru sína um stund og mæta hingað suður í Blíðubakkann í Mosfellsbænum til að sinna tamningum og þjálfun. Undanfarin ár hefur hann safnað reynslu í sarpinn og unnið hjá hinum ýmsu aðilum við greinina en nú er hann væntanlegur heim aftur og við erum afskaplega spennt yfir því:-) Það virðist ekki hlaupið að því að fá góða þjálfara, gott tamningafólk er greinilega störfum hlaðið og eftirsóttir starfskraftar. Þórhallur var á leið annað en ákvað að koma heim og nýta krafta sína þar enda Elías að drukkna í vinnu eftir að James ákvað að hætta vegna mikilla anna á öðrum vettvangi. Húsið er stútfullt af efnilegum unghrossum sem þeir frændur eiga ekki eftir að láta sér leiðast yfir og það verður gaman að setja hér inn myndir á næstunni enda myndast þessi hross afskaplega vel...og svo eru frændurnir nú afskaplega myndarlegir líka!
Set hér inn mynd af þeim frændum síðan um síðustu jól en Þórhallur hefur ekki riðið út í Mosfellsbænum síðan þá!

22.11.2011 12:00

Sorgarfréttir

Þær hörmungar hentu í gær að nýjasta hryssan í hópnum okkar, Bára frá Brjánsstöðum féll frá. Elías fann hana í haganum illa á sig komna og þrátt fyrir miklar björgunartilraunir dýralæknis endaði þetta svona. Að mati dýralækna hefur hún sennilega fengið blóðtappa í kjölfar köstunarinnar. Hún hafði nýverið kastað hest folaldi sem er nú komið í bæinn og virðist ætla að braggast ágætlega en hann fær einhverja galdrablöndu að drekka eftir forskrift Ingimars Sveins. Sá höfðingi var svo elskulegur að koma í hesthúsið til okkar til að líta á litla ræfilinn og gefa góð ráð. Við kunnum honum hjartans þakkir fyrir.
Nú er Ingimars-seiðurinn bruggaður á tveggja tíma fresti og sá stutti, sem heitir Bylur, svolgrar þessu í sig af bestu lyst. Elías hefur hinsvegar fundið sig knúinn til að setja á strangar samskiptareglur við folaldskrúttið, sem gilda um okkur konurnar! Hann er dauðhræddur um að við gerum þann stutta alveg óþolandi frekann ef við fáum lausan tauminn í knúsinu! Ég er svolítið smeyk um að sá ótti sé á miklum rökum reistur!

Hér er Bylur litli um síðustu helgi að drekka hjá móður sinni og við grunlaus um það sem var í vændum:-(

16.11.2011 10:21

Framtíðin fundin!

Við fórum gagngert í sveitina um helgina til að finna Framtíð...og fundum:-) Þó framtíðin liggi að sjálfsögðu í sveitinni þá á ég hér við hross! Framtíð er undan Sölku frá Sauðárkróki og Fonti frá Feti. Hún er, eins og Fontafkvæmin reyndar öll, sérlega stór, hálslöng og myndarleg:-) Við vorum farin að hafa þungar áhyggjur af henni þar sem hún hafði einhvernveginn farið framhjá okkur í síðustu smölunum. Tryppin sem voru saman í uppeldi í fyrravetur hafa haldið saman síðan en þessi er greinilega svolítið sjálfstæð og hafði tekið sig út úr hópnum og fór því ítrekað framhjá okkur. Kannski líka vegna þess að hún er svo stór og flott að hún gæti hæglega verið ári eldri en hún er. Núna gripum við til þess að skanna hvert einasta brúna hross sem við fundum og leit út fyrir að vera yngra en tvítugt:-) og hún fannst! Það hefði verið mikill missir ef hún hefði verið týnd eða dauð því mamma hennar virðist hreinlega framleiða gæðinga og við höfum nú þegar misst úr þessum árgangi merina undan henni Kjarnorku okkar, sú álpaðist út á ís og fór niður í gegnum vök á ísnum:-(
Við bættum nokkrum myndum frá þessari smölun í albúmið frá síðustu smölun og ég set hér inn myndir líka.

Framtíð frá Koltursey


Nútíð frá Koltursey er undan Dögg frá Hveragerði en sú hefur verið að gefa okkur alveg einstök hross hvað geðslag varðar og reyndar hæfileika líka. Það sem einkennir afkvæmin hennar er mikil forvitni og mannelska en samt eru þau alveg laus við frekju og yfirgang, yndisleg hross! Einstaklega auðtamin með gott tölt og fínan fótaburð, draumahross:-) Hér er mynd af henni þegar hún var að reyna að brjótast inní smölunarhúsið, en það gerði hún ítrekað:-) Hér er hún með Hrafndísi dóttur Elíasar.


Bára frá Brjánsstöðum er Hrafnsdóttir sem Elías og Berglind eignuðust í sumar. Hún var með fyli undan Vaðli frá Akranesi sem vakti athygli á sýningu á Miðfossum nú síðsumars. Folaldið lét heldur betur bíða eftir sér og fæddist ekki fyrr en í byrjun nóvember! Litla greyið hlaut nafnið Bylur enda hans fyrstu kynni af lífinu frekar kuldaleg. Hann virðist þó braggast vel og hér er hann með móður sinni kominn í fyrsta sinn inní flokkunarhúsið í Miðey sem við notum þegar smalað er.


06.11.2011 23:11

Og inn streymir ungviðið!

Frumtamningar ganga vel á okkar bæ, allt að gerast þar enda tveir eðal piltar mættir á svæðið til að aðstoða "þann gamla" (Elías!). Þetta eru þeir James Faulkner og Hinrik Helgason og er fengur í þeim báðum, James er nýútskrifaður og ferskur úr Hólaskóla og Hinni er með jafnvægi fyrir allan peninginn, kvartar helst yfir því að þetta tryppadót "hreyfi sig ekki!" Við gamla liðið sjáum það ekki beinlínis sem vandamál hve tryppin eru auðveld en augljóst er að Hinna myndi ekkert leiðast að fá að reyna sig í smá ródeó leikjum:-)
Hnit Stáladóttir, Kápa Álfsdóttir og Köllun Hávarsdóttir eru komnar í frí enda nánast farnar að haga sér eins og fulltamin hross! Komið gott í bili sagði bossinn (Elías!) og inn komu Kráksdóttirin Barónessa, Svartnisbörnin Blæja og Adolf og móvindótt Gormsdóttir, allt mjög spennandi tryppi!
Við bíðum nú eftir sæmilegu veðri til myndatöku en hér hefur rigning og rok og tilheyrandi myrkur hamlað því að hægt hafi verið að ná almennilegum myndum. Tók að gamni nokkrar inní hesthúsi af strákunum þegar farið var á bak Adolf og Gormsdótturinni í fyrsta sinn. Þær eru hér í myndalbúmi á síðunni en fleiri koma vonandi bráðlega!

Hinni vippar sér á bak þeirri vindóttu sem var bara sátt við athæfið:-)


James lýkur við að gera Adolf kláran fyrir knapa.

17.10.2011 22:38

Lilla kjarnorkukvendi og fallegi dýralæknirinn mæta í Miðey:-)

Það er engum blöðum það að flétta að við eigum langsætasta dýralækni norðan Alpafjalla, Ólöfu Loftsdóttur, sem er þó engan veginn hennar mesti kostur en hún er nefnilega líka afskaplega flínkur dýralækniremoticon Svo verður ekki um það deilt heldur að í ættinni er LANG sterkasta amma norðan OG sunnan alpafjalla, Amma Lilla!
Hún Ólöf mætir með okkur einu sinni á ári í Landeyjarnar þar sem ástandið á stóðinu er skoðað af stakri fagmennsku, gefið ormalyf og kíkt á merar og ungviði. Þetta hefur alltaf verið fjörugur fjölskyldudagur en þó aldrei sem nú á laugardaginn var enda mætti amma Lilla á svæðið og oboy oboy, það var heldur betur líf í tuskunum. Lilla handsamaði þarna hvert ungviðið á fætur öðru...með annarri hendi sjáið til, enda þurfti hún að nota hina til að benda á hin ýmsu tryppi og folöld og krefja tengdasoninn og Hadda bónda um ættir og hæfileika og hitt og þetta! Þeir náði auðvitað engan veginn að halda í við hana enda bað hún þá á stundum í guðs bænum að "reyna að láta renna í sér blóðið"emoticon Mikið fjör í Miðey sem endaði á grillveislu í hlöðunni þar sem rómaðir "góðborgarar" frá Miðey runnu ljúflega niður. Nokkur tryppi voru síðan tekin í bæinn, meðal annars stórglæsilegur Svartnissonur frá Miðey sem við erum mjög spennt yfir, Kráksdóttir og fleira sem við setjum hér inn fréttir af mjög fljótlega. Kíkið endilega á nýja myndaalbúmið frá smöluninni á laugardaginn, hefðum SVO þurft að hafa vídeóvél með enda ekki á hverjum degi sem sjá má ömmu leika sér að folöldum og tryppum eins og þar séu tuskudúkkur á ferð!

Þessi hélt hann ætti roð í ömmu Lillu en var fljótur að átta sig á því að það var misskilningur þegar hún greip hann þegar hann ætlaði að henda sér yfir handriðið:-)


Jörðin fagra var með svolítið munnbrúk...en bara í smá stund, sá fljótt að hún hafði hitt á ofjarl sinn!

Rökkva fannst sjúklega gaman að fylgjast með ömmu Lillu og reyndi ítrekað að fleygja sér yfir til hennar og blanda sér í þennan skemmtilega slag:-) hér er stóra systir búin að bjarga honum frá voða:-) Aldrei má maður nú ekki neitt!

28.09.2011 16:04

Fyrstu tryppin inn!

Nýtt hestaár er nú hafið og við erum byrjuð að taka inn og temja nýjan árgang, bara gaman auðvitaðemoticon Alltaf jafn spennandi að sjá hvernig tryppin eru! Við hefjum veturinn í rólegheitum, erum bara með fimm inni, fjögur frá okkur og eitt frá Miðey. Þetta eru Köllun, Sölku og Hávarsdóttir, Kápa, Elvu og Álfsdóttir, Hnit, Kjarnorku og Stáladóttir, Ári, Sölku og Álfasteinsson og Hrynjandi frá Miðey, Rispu og Dynjandasonur. Þau hafa nú verið inni í eina og hálfa viku og fara afskaplega vel af stað, geðgóð og auðveld, ekki hægt að biðja um meira í bili. Í gær var farið í fyrsta sinn á bak þeim og það gekk líka svona ljómandi vel. Mér finnst alltaf jafngaman að rifja upp hvernig þessar tamningar gengu fyrir sig í gamla daga, einhvernveginn man maður ekki eftir öðru en tryppin hafi verið töluvert villtari en nú!
Við bindum óneitanlega miklar vonir við merarnar þrjár, tvær eldri systur Hnit eru komnar í fyrstu verðlaun, eldri systir Köllunar, Staka, sigraði unghrossakeppnina í Herði í vor og er algjör snillingur og Kápa er önnur dóttir mikillar uppáhaldsmerar í fjölskyldunni. Svo leiðir tíminn í ljós hvað í þeim býremoticon 
Við tókum nokkrar myndir af þeim fyrir nokkrum dögum og setjum þær hér inn til gamans.

Köllun frá Koltursey
m: Salka frá Sauðárkróki
f: Hávar frá Skeljabrekku



Kápa frá Koltursey
m: Elva frá Mosfellsbæ
f: Álfur frá Selfossi




Hnit frá Koltursey
m: Kjarnorka frá Sauðárkróki
f: Stáli frá Kjarri



Ári frá Koltursey
m: Salka frá Sogni
f: Álfasteinn frá Selfossi



Hrynjandi frá Miðey
m: Rispa frá Miðey
f: Dynjandi frá Feti


27.09.2011 16:55

Söluhross

Við viljum benda á að við eigum á hverjum tíma alltaf svolítið af söluhrossum þó sölusíðan okkar bendi yfirleitt ekki til þessemoticon það er ljóst að við verðum að bæta okkur í að uppfæra hana!
Núna erum við til dæmis með til sölu allt frá þægum og góðum reiðhestum til topp kynbótagripa. Finna má núna upplýsingar um sum þeirra hér undir "hestar til sölu" en hikið ekki við að hafa samband ef þið viljið vita meira.

Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 90563
Samtals gestir: 26711
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:04:13