Færslur: 2012 Febrúar

08.02.2012 14:28

Yngismeyjarnar fögru fara fallega:-)

Þó hér á síðunni sé lítið líf þá er ekki sömu sögu að segja í Blíðubakkanum! Sem betur feremoticon
Þórhallur, Elías og Begga hamast við að þjálfa merarstóðið og ef ég skil þau rétt þá eru það ekki tóm leiðindin! Merarstóð segi ég þar sem aðeins eru merar í húsinu utan þriggja graðhesta og einn einasti geldingur sem fær allra náðarsamlegast að vera með enn um stund. En hann er reyndar á sölulista! Þjálfunin gengur vel og sérstaklega eru þau ánægð með þriggja vetra merarnar en þetta eru án efa þroskuðustu þriggja vetra tryppi sem við höfum haft á húsi hingað til, bæði hvað varðar andlegt og líkamlegt atgervi.
Því miður hefur hreint ekki viðrað til myndatöku en í morgun birti örlítið til í smástund og Begga þeysti af stað með kameruna með það sama. Set hér inn örfáar myndir frá þeim viðburði og Begga mun síðan setja inn nýtt myndaalbúm seinna í dag.

Hér er hún Regla, Elvu og Rökkvadóttir


Svo er hér ein af ljúflingnum henni Sveðju en hún er undan Dögg og Svartni



Önnur af Sveðju, það er svo gaman að hlaupa!



Svo er hér ein af Barónessu Kráksdóttur en hún er í eigu Martinu Gates vinkonu okkar. Þriggja vetra og þvílíkt efnileg! Eins og sjá má var veðrið hætt að vera til friðs og frekari myndatökum því frestað. Myndefnið eigum við þó í hrönnum og vonandi viðrar næstu daga til að festa það á mynd!


  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 90563
Samtals gestir: 26711
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:04:13