17.01.2012 16:05

Styrktartónleikar í Salnum í Kópavogi

Við viljum benda gestum síðunnar á styrktartónleika sem fara fram í Salnum í Kópavogi næstkomandi fimmtudag þann 19. Janúar.
Tónleikarnir eru haldnir til styrktar sonum Rabba vinar okkar, þeim Gunnari og Skorra (sjá betur í meðf. auglýsingu).
Ágóði tónleikanna rennur í tómstundastarf þeirra bræðra eins og t.d. hestamennsku.

26.12.2011 01:24

Gleðilega hátíð :-)

Við Kolturseyjarliðið óskum ykkur öllum gleðilegra jóla :-) Það var að sjálfsögðu farið í hinn árlega jóladagsreiðtúr í dag..... en hann var að vísu ekki alveg samkvæmt hefðinni þetta árið þ.e. að strákarnir (Pétur, Elías og Þórhallur) færu á þremur systrum, Kjarnorkudætrum eins og sl. 2 ár! En núna eru aðeins 2 dætur hennar inni, Hnáta og Hnoss þannig að það varð að bæta öðrum hrossum í hópinn og af nægu var að taka enda fullt hús :-) Ég set hérna inn mynd af flotta hópnum sem fór í dag og er gaman að segja frá því að það bættust fleiri í hópinn en hestar og á ég þá við fallegu og kláru tengdadóttur Koltureyjarhjónanna hana Söru Sigurbjörns og hækkaði hún fegurðarstuðul hópsins um mörg prik...hehe!!emoticon  

Pétur og Stroka, Sara og Stingur, Þórhallur og Regla, Elías og Svörður :-)


Svo ein í viðbót af þessu ótrúlega fallega fólki :-)

Jólaknús til ykkar emoticon

05.12.2011 10:08

Stórtíðindi í Blíðubakkanum!

Þau stórtíðindi eru héðan að einkasonurinn ætlar að yfirgefa Norðurlandið og hana Söru sína um stund og mæta hingað suður í Blíðubakkann í Mosfellsbænum til að sinna tamningum og þjálfun. Undanfarin ár hefur hann safnað reynslu í sarpinn og unnið hjá hinum ýmsu aðilum við greinina en nú er hann væntanlegur heim aftur og við erum afskaplega spennt yfir því:-) Það virðist ekki hlaupið að því að fá góða þjálfara, gott tamningafólk er greinilega störfum hlaðið og eftirsóttir starfskraftar. Þórhallur var á leið annað en ákvað að koma heim og nýta krafta sína þar enda Elías að drukkna í vinnu eftir að James ákvað að hætta vegna mikilla anna á öðrum vettvangi. Húsið er stútfullt af efnilegum unghrossum sem þeir frændur eiga ekki eftir að láta sér leiðast yfir og það verður gaman að setja hér inn myndir á næstunni enda myndast þessi hross afskaplega vel...og svo eru frændurnir nú afskaplega myndarlegir líka!
Set hér inn mynd af þeim frændum síðan um síðustu jól en Þórhallur hefur ekki riðið út í Mosfellsbænum síðan þá!

22.11.2011 12:00

Sorgarfréttir

Þær hörmungar hentu í gær að nýjasta hryssan í hópnum okkar, Bára frá Brjánsstöðum féll frá. Elías fann hana í haganum illa á sig komna og þrátt fyrir miklar björgunartilraunir dýralæknis endaði þetta svona. Að mati dýralækna hefur hún sennilega fengið blóðtappa í kjölfar köstunarinnar. Hún hafði nýverið kastað hest folaldi sem er nú komið í bæinn og virðist ætla að braggast ágætlega en hann fær einhverja galdrablöndu að drekka eftir forskrift Ingimars Sveins. Sá höfðingi var svo elskulegur að koma í hesthúsið til okkar til að líta á litla ræfilinn og gefa góð ráð. Við kunnum honum hjartans þakkir fyrir.
Nú er Ingimars-seiðurinn bruggaður á tveggja tíma fresti og sá stutti, sem heitir Bylur, svolgrar þessu í sig af bestu lyst. Elías hefur hinsvegar fundið sig knúinn til að setja á strangar samskiptareglur við folaldskrúttið, sem gilda um okkur konurnar! Hann er dauðhræddur um að við gerum þann stutta alveg óþolandi frekann ef við fáum lausan tauminn í knúsinu! Ég er svolítið smeyk um að sá ótti sé á miklum rökum reistur!

Hér er Bylur litli um síðustu helgi að drekka hjá móður sinni og við grunlaus um það sem var í vændum:-(

16.11.2011 10:21

Framtíðin fundin!

Við fórum gagngert í sveitina um helgina til að finna Framtíð...og fundum:-) Þó framtíðin liggi að sjálfsögðu í sveitinni þá á ég hér við hross! Framtíð er undan Sölku frá Sauðárkróki og Fonti frá Feti. Hún er, eins og Fontafkvæmin reyndar öll, sérlega stór, hálslöng og myndarleg:-) Við vorum farin að hafa þungar áhyggjur af henni þar sem hún hafði einhvernveginn farið framhjá okkur í síðustu smölunum. Tryppin sem voru saman í uppeldi í fyrravetur hafa haldið saman síðan en þessi er greinilega svolítið sjálfstæð og hafði tekið sig út úr hópnum og fór því ítrekað framhjá okkur. Kannski líka vegna þess að hún er svo stór og flott að hún gæti hæglega verið ári eldri en hún er. Núna gripum við til þess að skanna hvert einasta brúna hross sem við fundum og leit út fyrir að vera yngra en tvítugt:-) og hún fannst! Það hefði verið mikill missir ef hún hefði verið týnd eða dauð því mamma hennar virðist hreinlega framleiða gæðinga og við höfum nú þegar misst úr þessum árgangi merina undan henni Kjarnorku okkar, sú álpaðist út á ís og fór niður í gegnum vök á ísnum:-(
Við bættum nokkrum myndum frá þessari smölun í albúmið frá síðustu smölun og ég set hér inn myndir líka.

Framtíð frá Koltursey


Nútíð frá Koltursey er undan Dögg frá Hveragerði en sú hefur verið að gefa okkur alveg einstök hross hvað geðslag varðar og reyndar hæfileika líka. Það sem einkennir afkvæmin hennar er mikil forvitni og mannelska en samt eru þau alveg laus við frekju og yfirgang, yndisleg hross! Einstaklega auðtamin með gott tölt og fínan fótaburð, draumahross:-) Hér er mynd af henni þegar hún var að reyna að brjótast inní smölunarhúsið, en það gerði hún ítrekað:-) Hér er hún með Hrafndísi dóttur Elíasar.


Bára frá Brjánsstöðum er Hrafnsdóttir sem Elías og Berglind eignuðust í sumar. Hún var með fyli undan Vaðli frá Akranesi sem vakti athygli á sýningu á Miðfossum nú síðsumars. Folaldið lét heldur betur bíða eftir sér og fæddist ekki fyrr en í byrjun nóvember! Litla greyið hlaut nafnið Bylur enda hans fyrstu kynni af lífinu frekar kuldaleg. Hann virðist þó braggast vel og hér er hann með móður sinni kominn í fyrsta sinn inní flokkunarhúsið í Miðey sem við notum þegar smalað er.


06.11.2011 23:11

Og inn streymir ungviðið!

Frumtamningar ganga vel á okkar bæ, allt að gerast þar enda tveir eðal piltar mættir á svæðið til að aðstoða "þann gamla" (Elías!). Þetta eru þeir James Faulkner og Hinrik Helgason og er fengur í þeim báðum, James er nýútskrifaður og ferskur úr Hólaskóla og Hinni er með jafnvægi fyrir allan peninginn, kvartar helst yfir því að þetta tryppadót "hreyfi sig ekki!" Við gamla liðið sjáum það ekki beinlínis sem vandamál hve tryppin eru auðveld en augljóst er að Hinna myndi ekkert leiðast að fá að reyna sig í smá ródeó leikjum:-)
Hnit Stáladóttir, Kápa Álfsdóttir og Köllun Hávarsdóttir eru komnar í frí enda nánast farnar að haga sér eins og fulltamin hross! Komið gott í bili sagði bossinn (Elías!) og inn komu Kráksdóttirin Barónessa, Svartnisbörnin Blæja og Adolf og móvindótt Gormsdóttir, allt mjög spennandi tryppi!
Við bíðum nú eftir sæmilegu veðri til myndatöku en hér hefur rigning og rok og tilheyrandi myrkur hamlað því að hægt hafi verið að ná almennilegum myndum. Tók að gamni nokkrar inní hesthúsi af strákunum þegar farið var á bak Adolf og Gormsdótturinni í fyrsta sinn. Þær eru hér í myndalbúmi á síðunni en fleiri koma vonandi bráðlega!

Hinni vippar sér á bak þeirri vindóttu sem var bara sátt við athæfið:-)


James lýkur við að gera Adolf kláran fyrir knapa.

17.10.2011 22:38

Lilla kjarnorkukvendi og fallegi dýralæknirinn mæta í Miðey:-)

Það er engum blöðum það að flétta að við eigum langsætasta dýralækni norðan Alpafjalla, Ólöfu Loftsdóttur, sem er þó engan veginn hennar mesti kostur en hún er nefnilega líka afskaplega flínkur dýralækniremoticon Svo verður ekki um það deilt heldur að í ættinni er LANG sterkasta amma norðan OG sunnan alpafjalla, Amma Lilla!
Hún Ólöf mætir með okkur einu sinni á ári í Landeyjarnar þar sem ástandið á stóðinu er skoðað af stakri fagmennsku, gefið ormalyf og kíkt á merar og ungviði. Þetta hefur alltaf verið fjörugur fjölskyldudagur en þó aldrei sem nú á laugardaginn var enda mætti amma Lilla á svæðið og oboy oboy, það var heldur betur líf í tuskunum. Lilla handsamaði þarna hvert ungviðið á fætur öðru...með annarri hendi sjáið til, enda þurfti hún að nota hina til að benda á hin ýmsu tryppi og folöld og krefja tengdasoninn og Hadda bónda um ættir og hæfileika og hitt og þetta! Þeir náði auðvitað engan veginn að halda í við hana enda bað hún þá á stundum í guðs bænum að "reyna að láta renna í sér blóðið"emoticon Mikið fjör í Miðey sem endaði á grillveislu í hlöðunni þar sem rómaðir "góðborgarar" frá Miðey runnu ljúflega niður. Nokkur tryppi voru síðan tekin í bæinn, meðal annars stórglæsilegur Svartnissonur frá Miðey sem við erum mjög spennt yfir, Kráksdóttir og fleira sem við setjum hér inn fréttir af mjög fljótlega. Kíkið endilega á nýja myndaalbúmið frá smöluninni á laugardaginn, hefðum SVO þurft að hafa vídeóvél með enda ekki á hverjum degi sem sjá má ömmu leika sér að folöldum og tryppum eins og þar séu tuskudúkkur á ferð!

Þessi hélt hann ætti roð í ömmu Lillu en var fljótur að átta sig á því að það var misskilningur þegar hún greip hann þegar hann ætlaði að henda sér yfir handriðið:-)


Jörðin fagra var með svolítið munnbrúk...en bara í smá stund, sá fljótt að hún hafði hitt á ofjarl sinn!

Rökkva fannst sjúklega gaman að fylgjast með ömmu Lillu og reyndi ítrekað að fleygja sér yfir til hennar og blanda sér í þennan skemmtilega slag:-) hér er stóra systir búin að bjarga honum frá voða:-) Aldrei má maður nú ekki neitt!

28.09.2011 16:04

Fyrstu tryppin inn!

Nýtt hestaár er nú hafið og við erum byrjuð að taka inn og temja nýjan árgang, bara gaman auðvitaðemoticon Alltaf jafn spennandi að sjá hvernig tryppin eru! Við hefjum veturinn í rólegheitum, erum bara með fimm inni, fjögur frá okkur og eitt frá Miðey. Þetta eru Köllun, Sölku og Hávarsdóttir, Kápa, Elvu og Álfsdóttir, Hnit, Kjarnorku og Stáladóttir, Ári, Sölku og Álfasteinsson og Hrynjandi frá Miðey, Rispu og Dynjandasonur. Þau hafa nú verið inni í eina og hálfa viku og fara afskaplega vel af stað, geðgóð og auðveld, ekki hægt að biðja um meira í bili. Í gær var farið í fyrsta sinn á bak þeim og það gekk líka svona ljómandi vel. Mér finnst alltaf jafngaman að rifja upp hvernig þessar tamningar gengu fyrir sig í gamla daga, einhvernveginn man maður ekki eftir öðru en tryppin hafi verið töluvert villtari en nú!
Við bindum óneitanlega miklar vonir við merarnar þrjár, tvær eldri systur Hnit eru komnar í fyrstu verðlaun, eldri systir Köllunar, Staka, sigraði unghrossakeppnina í Herði í vor og er algjör snillingur og Kápa er önnur dóttir mikillar uppáhaldsmerar í fjölskyldunni. Svo leiðir tíminn í ljós hvað í þeim býremoticon 
Við tókum nokkrar myndir af þeim fyrir nokkrum dögum og setjum þær hér inn til gamans.

Köllun frá Koltursey
m: Salka frá Sauðárkróki
f: Hávar frá Skeljabrekku



Kápa frá Koltursey
m: Elva frá Mosfellsbæ
f: Álfur frá Selfossi




Hnit frá Koltursey
m: Kjarnorka frá Sauðárkróki
f: Stáli frá Kjarri



Ári frá Koltursey
m: Salka frá Sogni
f: Álfasteinn frá Selfossi



Hrynjandi frá Miðey
m: Rispa frá Miðey
f: Dynjandi frá Feti


27.09.2011 16:55

Söluhross

Við viljum benda á að við eigum á hverjum tíma alltaf svolítið af söluhrossum þó sölusíðan okkar bendi yfirleitt ekki til þessemoticon það er ljóst að við verðum að bæta okkur í að uppfæra hana!
Núna erum við til dæmis með til sölu allt frá þægum og góðum reiðhestum til topp kynbótagripa. Finna má núna upplýsingar um sum þeirra hér undir "hestar til sölu" en hikið ekki við að hafa samband ef þið viljið vita meira.

14.09.2011 22:10

1.verðlauna merar :-)

Jæja loksins einhverjar hestafréttir :-) Við erum alveg að springa úr monti yfir merunum okkar sem fóru í dóm núna í lok ágúst á Mið-Fossum.  Farið var með 4 merar, þar af 2 úr okkar ræktun og komust þær ALLAR í 1.verðlaun..... ekki slæmt það!!! Hnetan okkar sýndi loksins það sem í henni býr..... fékk fjórar níur!! Fyrir tölt, brokk, vilja og geð og svo fegurð í reið :-) Daníel Jónsson sýndi merarnar fyrir okkur og sýndi þar þvílíkur snillingur hann er :-) Gaman að uppskera svona eftir mikla vinnu, en bæði Elías og Line hafa lagt mjög mikla vinnu í þessar hryssur, tamið þær og þjálfað og eiga því síður heiðurinn af þessum árangri :-)  Núna á familían heilar SEX 1.verðlauna merar......víííííemoticon 
Merarnar sem fóru í dóm núna eru Hneta frá Koltursey, Hnota frá Koltursey, Stroka frá Kiðafelli og Fjöður frá Gamla Hrauni. Læt hérna fylgja myndir af prinsessunum síðan á sýningunni...... en svo eru fleiri myndir í myndaalbúminuemoticon

Hneta frá Koltursey 


Hnota frá Koltursey


Fjöður frá Gamla Hrauni


Stroka frá Kiðafelli

17.08.2011 10:03

Hús á faraldsfæti.

Í u.þ.b. ársgamalli færslu hér á síðunni lofaði ég því að koma með frekari fréttir af framkvæmdum við íbúðarhúsið okkar nýja sem við grófum fyrir í ágúst í fyrra og steyptum síðan sökkla og plötu fyrir í beinu framhaldi.  Vegna ýmissa tafa varð ekki af flutningi hússins fyrr en um mánaðarmótin Júní / Júlí nú í ár, eða á meðan Landsmótinu stóð og því fórum við Tóta ekki á það.
Ég er nú búinn að setja inn myndaalbúm með nokkrum myndum af ferðalagi hússins þá 300 kílómetra leið sem það var flutt úr Hafnarskógi í Borgarfirði og í Koltursey.  Ferðalagið sem farið var um nótt, tók ca. sjö tíma og gekk mjög vel.  Læt hér fylgja flotta mynd af húsinu á leið yfir Stóru Laxá rétt sunnan við Flúðir.

14.06.2011 23:18

Folöldin okkar :-)

Folöldin hrúgast niður þessa dagana og er gaman að segja frá því að hún Kjarnorka okkar kastaði sinni 8. meri núna um daginn...... og hún er meira að segja moldótt!!! Frúnni í Koltursey hefur dreymt um að eignast moldótt svo henni varð að ósk sinni :-)  Molda litla hefur enn ekki fengið nafn þar sem að nú á að afnema HN.... regluna og fær hún nafn sem líkist ekkert nöfnum systra sinna ( mikill léttir fyrir suma.....hehe :)  Hérna kemur ein mynd af þeim fallegu mæðgum rétt eftir að hún kom í heiminn :-)


Við erum einnig búin að fá brúna hryssu sem hefur fengið nafnið Hrafndís en hún er undan Elvu frá Mosfellsbæ og Þristi frá Feti. Svo fengum við brúna hryssu undan Svartni frá Miðsitju og Glódísi frá Ási. Brúnan hest sem hefur fengið nafnið Þrymur en hann er undan Sölku frá Sauðárkróki og Þristi frá Feti. Fluga frá Sauðárkróki kastaði rauðum hesti sem var undan Fonti frá Feti og því miður fannst hann dáinn í haganum :-(  mikil sorg þar sem þetta er annað skipti sem hún missir folald undan Fonti.
Hérna kemur ein mynd af Sölku frá Sauðárkróki og honum Þrymi litla Þristssyni :-)




Gaman að segja frá því að hún Dimmalimm okkar frá Þúfu hækkaði verulega í kynbótadómi núna um daginn og fór í 8.26 í aðaleinkunn!! Við erum voðalega montin með þetta þar sem hún er nú komin inn á Landsmótið :-)  Hún fékk 9.0 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, hægt tölt og hægt stökk og svo einnig fyrir hófa!  Stroka frá Kiðafelli fékk 7.99 í aðaleinkunn sem við erum ótrúlega ánægð með en hún fékk einnig 9.0 fyrir tölt og brokk....... manni finnst bara svo fúlt að það muni bara einni kommu að hún sé í 1.verðlaunum!!!  Hneta og Hnota systurnar fóru einnig í dóm en áttu hvorugar neinn sérstakan dag en stefnt er með þær aftur í dóm síðsumars þegar þær eru búnar að fá að fara aðeins á grænt og búnar að fara í eitt stykki hestaferð :-)  Danni Jóns ætlar síðan að sýna þær fyrir okkur.  Staka frá Koltursey fór einnig í dóm og kom hún út með 7.79 en hún fer ekki aftur í dóm fyrr en á næsta ári...... hennar bíður bara frelsið í haganum :-)  Læt hér fylgja eina mynd af dömunni þegar hún og Line unnu unghrossakeppnina í Herði um daginn :-)


Endilega kíkið á nýju myndaalbúmin emoticon

27.05.2011 14:14

Fontur frá Feti í Miðey í sumar

Fonturinn okkar verður í Miðey í girðingu í sumar. Hann fer í girðinguna núna á sunnudaginn, þann 29. maí. Þeir sem hafa hug á að koma með hryssu undir Font geta haft samband við Þórhall í síma 6921030.
Set hér að gamni inn mynd af dóttur hans sem er að fara í dóm í dag og nýjasta afkvæmi hans fæddu okkur


23.05.2011 23:26

Spennan magnast!!!

Nú styttist í kynbótasýningar hjá okkur og við erum klárlega að deyja úr spenningi....... :-)  Þetta er alltaf jafn taugatrekkjandi viðburður sem kallar á ófáar andvökunætur!!  Undirbúningurinn er í hámarki og er búið að járna, baða, kemba og græja....... og allt að verða klárt :-)  Fyrstu merarnar mæta í brautina í Hafnarfirði n.k. fimmtudag og ætlum við fjölskyldan að sjálfsögðu að mæta í brekkuna og vera viðstödd þegar stóru tölurnar birtast......hehe :-)  Þær sem fara í dóm núna á fimmtudag og föstudag eru þær Hneta frá Koltursey, Hnota frá Koltursey, Staka frá Koltursey og Stroka frá Kiðafelli. Svo er stefnan tekin á Hellu viku seinna og þá fara í dóm, Dimmalimm frá Þúfu, Fjöður frá Gamla-Hrauni og svo loks bjútíið okkar hann Svörður frá Koltursey....... víííí........ bara gaman :-)

Hérna eru nokkrar myndir frá Íþróttamóti Harðar sem var um daginn!

Dimmalimm bjútíkvínið okkar í fjórganginum :-)


Eydís frá Miðey í góðri sveiflu í töltinu :-)


Stroka frá Kiðafelli í fjórganginum :-)


Svo ein önnur af prinsessunni :-)

Jæja nú krossum við bara putta og tær og vonum að allt gangi uppemoticon

22.02.2011 13:32

Hnossin okkar :-)

Varð bara aðeins að monta mig af litlu, krúttlegu 3v. merinni okkar henni Hnoss frá Koltursey........ þvílíkt bjútíemoticon (hverjum þykir sinn fugl fagur....... og allt það....hehe).  En ég náði nokkrum myndum af henni og Line um daginn í blíðunni!
Hnoss er eins og áður hefur komið fram undan Álfasteini frá Selfossi og Kjarnorku frá Sauðárkróki. 




Hérna koma svo tvær myndir af Magna frá Þúfu og Ella en Magni er 5v. stóðhestur 
undan Stíganda frá Leysingjastöðum og Röst frá Mosfellsbæ.


Set svo fleiri myndir inn í myndaalbúmið emoticon
  • 1
Flettingar í dag: 133
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 136
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 81616
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 15:50:12